2008/11/03

Nóvemberáskorunin


Íslendingar hafa orðið fyrir þungbæru áfalli. Afleiðingarnar láta engan ósnortinn. Einstaklingar, fjölskyldur og fyrirtæki eru dæmd til að bera þungar byrðar, hvort sem þau áttu sök á óförunum eða ekki. Þjóðin þarf á vegvísi að halda sem markar leiðina til framtíðar. Við krefjumst þess:




  • að íslensk stjórnvöld lýsi því yfir með afgerandi hætti að þau ætli að taka upp viðræður við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku evrunnar svo skjótt sem auðið er. Kanna þarf af alvöru hvaða valkosti þjóðin hefur í stöðunni; hún á rétt á að kjósa beint og milliliðalaust um Evrópumálin.
  • að íslensk stjórnvöld setji fram skýra efnahagsstefnu og skipi strax nýja, faglega yfirstjórn Seðlabanka Íslands. Á alþjóðavettvangi eru Íslendingar rúnir trausti á sviði efnahags- og peningamála; senda þarf ótvíræð skilaboð um að þar verði snúið við blaðinu.
  • að Alþingi mæli með lögformlegum hætti fyrir um gagngera úttekt, undir forystu erlendra aðila, á aðdraganda þeirrar kreppu sem Íslendingar standa frammi fyrir og þeim ráðstöfunum sem hafa verið gerðar í framhaldi af hruni íslensku bankanna. Tryggja þarf réttlæti; sagan má ekki endurtaka sig.

Rétta þarf þingmönnum og ríkisstjórn hjálparhönd við að taka af skarið. Við mælum með eftirfarandi aðgerðum:

  • Mælið fyrir áskoruninni á opinberum vettvangi, í fjölmiðlum eða með öðrum hætti.


  • Setjið upphrópunarmerki í glugga á heimili, bifreið eða vinnustað til merkis um stuðning. Skjal með tákninu sem hægt er að prenta út og hengja í glugga má nálgast hér á Acrobat/PDF formi og hér sem Word skjal.


  • Sendið áskorunina með persónulegum skilaboðum til þingmanna og ráðherra. Ef þið viljið senda áskorunina sem viðhengi er hægt að nálgast hana hér sem Acrobat/PDF skjal og hér sem Word skjal. Lista yfir þingmenn finnið þið á vef Alþingis.


Ef þið viljið leggja hópnum lið eða fá frekari upplýsingar sendið póst á þetta netfang: askorun@gmail.com

Talsmenn hópsins fyrst um sinn eru: